Fossvogsbrún 6
200 KópavogurFossvogsbrún 6 200
KópavogurLýsing
Miklaborg kynnir:
Sjarmerandi og skemmtilegt einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð á jaðri Fossvogsdals með beinni tengingu við náttúrna.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri og þaðan inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur eignarinnar. Á vinstri hönd er gengið inní eldhús með eldri innréttingu með borðrkrók og tengi fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er þvottahús með bakinngangi. Stofan er L laga og er sérlega björt og rúmgóð. Auðvelt að gera fjórða svefnherbergið á kostnað stofunnar. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum. Tvö barnaherbergi og er annað mjög rúmgott. Baðherbergi er með baðkari og eldri innréttingu.
Frístandi bílskúr sem hefur verið innréttaður sem íbúð og gefur leigutekjur.
Lóðin er sérlega stór og liggur að opnu svæði í vestur og er því stutt í gönguleiðir og náttúruna.Búið að endurnýja einhverja glugga.
Fataskápar, gólfefni og innihurðar voru endurnýjaðar árið 2018 en komið er að endurnýjun á gleri víða í húsinu.
Nýlega var skipt um rafmagnstöflu og raflagnir endurnýjaðar að hluta.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is