Opið hús: 26.04.2026, 15:15 - 26.04.2026, 15:45

Fellsmúli 11 108

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð í mikið endurnýjuðu fjölbýli á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 58,2 fm að meðtalinni 4,6 fm geymslu.

***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***


Nánari upplýsingar veitir Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Nánari lýsing

Komið er inn í hol með fataskáp sem tengir saman alla hluta íbúðarinnar. Baðherbergið er með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Eldhús er með góðu skápa- og vinnuplássi og er opið að stofu að hluta. Stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu björtu alrými með útgengi út á suðursvalir. Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskáp. Í sameign er sérmerkt geymsla auk sameiginlegs þvottahúss og hjóla- og vagnageymslu.

GÓLFEFNI nýlegt parket og dúkur á baðherbergi.

Viðhaldsaga íbúðar samkvæmt fyrri eiganda:

Búið að skipta um ofna og ofnalagnir í íbúðinni. Skipt um tengla og rofa ásamt nýjum ídráttarvírum. Rafmagn og tafla yfirfarin. Búið að skipta um glugga og gler í allri íbúðinni. 

Viðhaldssga á sameignarhlutum

2004 - Þakjárn endurnýjað

2007 - Múrviðgerð og málun.

2010 - Klæðning á austurgafl og nýjir gluggar í endaíbúðum í nr. 9.

2013 - Nýjir gluggar á suður og vesturhlið. Nýtt gler, póstar og opnanleg fög á norðurhlið. 

2015 - Skólplögn undir húsinu mynduð og fóðruð og lagt dren.

2018 – Forstofan endurnýjuð ásamt því að skipta um póstkassa og koma fyrir mynd dyrasíma.

2020 - Klæðning á suður og vesturhlið. Norðurhlið múrviðgerð og máluð. Þak málað og skipt um svalarhandrið á öllum svölum og svalagólf máluð.

2024 - Sameignin öll tekin í gegn, bæði var málað og skipt um teppi


Fasteignin Fellsmúli 11

58.2 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1964
Fermetraverð : 994.845 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 51.750.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

57.900.000 Kr.
Hafðu samband