Opið hús: 23.10.2024, 17:30 - 23.10.2024, 18:00

Fálkahraun 4 220

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt einbýli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr að Fálkahrauni 4 á eftirsóttum stað við Einarsreit í hrauninu í Hafnarfirði. Hverfið á Einarsreit er byggt í hlýlegum og samræmdum stíll með skandinavísku yfirbragði. Húsið sem er byggt árið 2000 er skráð 188 fm og þar af er bílskúr 32,9 fm. Á neðri hæð er forstofa, svefnherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Útgengi er úr stofu á skjólgóðan pall með heitum potti. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og gangur þaðan sem útgengt er út á stórar svalir með kvöldsól og glæsilegu útsýni. Sjarmerandi eign á vinsælum stað í Hafnarfirði, þar sem stutt er í leikskóla, skóla og miðbæ Hafnarfjarðar.

Neðri hæð:

Forstofa: Komið er inn í bjarta flísalagða forstofu með fataskáp.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskáp og gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.

Eldhús: Er opið að hluta með góðu skápaplássi og tveimur gluggum. Flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými, parket á gólfi.Frá stofu er útgent út á skjólgóða timburverönd með heitum potti (hitaveitu).

Baðherbergi: Er endurnýjað með fallegri innréttingu, walk in sturtu og upphengdu salerni. Flísalagt á gólfi og til veggja.

Þvottahús: Er með innréttingu með skolvask og góðu skápaplássi.

Bílskúr: Er inn af þvottahúsi. Bílskúr er með rafmagni, heitu og köldu vatni. Flísar á gólfi.

Efri hæð:

Fallegur viðarstigi liggur upp á efri hæð.

Svefnherbergi 1: Er um 8 fm. Parket á gólfi.

Svefnherbergi 2: Er um 13,4 fm. Parket á gólfi.

Svefnherbergi 3: Er um 11,7 fm. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Er með frístandandii baðkari og glugga. Flísar á gólfi.

Svalir: Frá svefnherbergisgangi er gengið út á 29 fm vestursvalir með glæsilegu útsýni.

Falleg aðkoma er að eigninni og er frágangur lóðarinnar snyrtilegur. Bæði bílaplan og stéttin að húsinu eru upphituð. Uppsett hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl fylgir með eigninni.

Allar nánari upplýsingar gefur:

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Fasteignin Fálkahraun 4

188.0 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2000
Fermetraverð : 728,191 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 122.600.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

136.900.000 Kr.
Hafðu samband