Fagrahlíð 1
221 HafnarfjörðurFagrahlíð 1 221
HafnarfjörðurLýsing
Miklaborg kynnir: talsvert endurnýjaða og bjarta þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Fögruhlíð í Setberginu í Hafnarfirði. Endurnýjað eldhús og baðherbergi er að mestu endurnýjað. Nýlegt harðparket er á íbúð. Þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara (5 fm) og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu. Eignin er skráð samtals 76,4 fm, þar af er íbúðin sjálf 71,4 fm og geymsla 5 fm.
Leitið upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313
Miklaborg kynnir: bjarta þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Fögruhlíð í Setberginu í Hafnarfirði. Eldhús var nýlega endurnýjað og baðherbergi hefur verið endurnýjað að mestu. Nýlegt harðparket er á íbúð. Þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara (5 fm) og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.
Nánari lýsing: Inngangur er sameiginlegur en alls eru tíu íbúðir í húsinu. Íbúðin skiptist í anddyri, endurnýjað eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi sem er uppgert að merstu, þvottaherbergi og svalir. Sérgeymsla í kjallara fylgir sem og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Komið er inn í forstofu með fataskáp. Eldhús sem er með nýrri hvítri viðar innréttingu og stofa eru í sama opna rýminu. Gengið er út á rumgóðar svalir sem snúa í suður frá stofu. Þvottaherbergi er með viðeigandi tengjum fyrir þvottavél, þurrkara og hillum. Svefnherbergi eru tvö talsins og eru rúmgóðir skápar í hjónaherbergi. Baðherbergi er með nýrri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtu og flísum á gólfi og veggjum að hluta. Nýlegt harðparket er á gólfum íbúðar, að undanskildu þvottaherbergi og baðherbergi sem eru með flísum. Sérgeymsla í kjallara fylgir (5 fm) sem og hludeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði. Stutt í helstu þjónustu, svo sem leikskóla og skóla.
Allar upplýsingar um eignina veitir: Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignasali í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is