Opið hús: 31.08.2026, 16:00 - 31.08.2026, 16:30

Eiríksgata 9 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Björt og falleg, mikið endurnýjuð íbúð í kjallara í reisulegu húsi við Eiríksgötu í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, opið eldhús, baðherbergi, snyrtingu og svefnherbergi. Lítil sérgeymsla fylgir og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Fallegur garður í rækt.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Komið í anddyri. Stofan er rúmgóð með harðparketi.

Eldhus er opið í stofu. Þar er nýleg falleg innrétting með spanhelluborði og bakaraofni, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti. Gluggar í stofu eru á tvo vegu.

Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuhaus og glugga. Snyrting með salerni og vaski.

Svefnherbergi er rúmgott með skápum. Harðparket á gólfum.

Í kjallara fylgir sérgeymsla, sameiginlegt þvottaherbergi og sameiginlegur kyndiklefi. Nýleg rafmagnstafla er fyrir húsið.

Fallegur sameiginlegur garður i rækt.

Skv. síðasta afsali er kvöð um forkaupsrétt á eigninni.

Björt og falleg íbúð á frábærum stað við miðborg Reykjavíkur.


Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.





Fasteignin Eiríksgata 9

64.0 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1933
Fermetraverð : 857.813 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 56.900.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

54.900.000 Kr.
Hafðu samband