Eirhöfði 7b (703) 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.

Íbúð 703 er 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á 7. hæð(með stórum þaksvölum, bílskúr og bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er á efstu hæð og með útsýni. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi. Einstök eign. Litaþema er Kasmír grár. Aukin lofthæð 276 cm. Íbúðin afhendist fullbúin án megin gólfefna.

Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.

Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.

Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!

Sjá nánar www.eirhofdi.is

Sjá vídeó sýningaríbúðir https://eirhofdi.is/syningaribudir/

Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign.

Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir er snúa í vestur með stórkostlegu útsýni til borgarinnar.

Sjónvarpsherbergi: Til hliðar við stofu án fataskáps.

Þaksvalir: 56,1 fm þaksvalir út frá stofu og eldhúsi.
Baðherbergi: Með sturtu með Unidrain línurist og sturtugleri, vegghengdri salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.

Geymsla: er 19,7 fm.
Bílskúr: 33,8 fm bílskúr í lokaðri bílgeymslu
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B27.

Nánari upplýsingar veita

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Íris Anna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Gabriel Máni Hallsson í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Steinn Andri Viðarsson í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Fasteignin Eirhöfði 7b (703)

190.7 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.074.987 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat : 1
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan er giftur og á 4 dætur.

205.000.000 Kr.
Hafðu samband