Opið hús: 31.05.2026, 15:00 - 31.05.2026, 15:30

Eirhöfði 7b (701) 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: ÞÍN LEIÐ AÐ NÝRRI ÍBÚÐ - AÐEINS 10% ÚTBORGUN UMBRA20

Stórkostlegt útsýni - Pantið einkaskoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.

Íbúð 701 er 5 herbergja vel skipulögð íbúð á 7. hæð með svölum bílskúr og bílastæði í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi þar af annað með baðkari. Stórt alrými þaðan sem gengið er út á þaksvalir með einu besta útsýni sem hægt er að fá yfir borgina í vestur. Einstök eign. Litaþema er Dökk eik.

Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.

Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.

Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!

(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign.)


Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir er snúa í vestur með stórkostlegu útsýni til borgarinnar í vestur. Sjónvarpsstofa til hliðar við anddyri.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi. Annað þeirra með Sturtu með Unidrain línurist og sturtugleri. Stærra baðherbergið með baðkari. Bæði baðherbergin eru með vegghengdri salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Bílskúr: 25,9 fm bílskúr í lokaðri bílgeymslu

Geymsla: er 19,2 fm
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B24


Nánari upplýsingar veita

Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is

Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Íris Arna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Steinn Andri Viðarsson í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Fasteignin Eirhöfði 7b (701)

188.9 5 Herbergi 2 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Fermetraverð : 1.164.637 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 136.450.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

220.000.000 Kr.
Hafðu samband