Eirhöfði 7a (303)
110 ReykjavíkEirhöfði 7a (303) 110
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Góð studioíbúð á 3. hæð með svölum. Hlýleg íbúð með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum og vinyl parket á gólfum utan baðherbergis sem er flísalagt. Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi. Stílhrein hönnun og vönduð gæði. Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur. Útsýni frá íbúðinni í vestur er frábært og nýtur hún sólar mestan part dags.
Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: er með með fataskáp sem nær upp í loft..
Stofa/eldhús/alrými: 16,6 fm að stærð, eldhús með fallegri sérsmíðaðri innréttingu með veggofni og span-helluborði og einnig fylgir með innbyggður ísskápur.
Baðherbergi: Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Sturta með Unidrain línurist og sturtugleri. Vegghengd salernisskál frá GROHE með mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki ásamt handlaug sem situr ofan á borðplötu frá GROHE. Skápainnrétting fyrir þvottavél og þar fyrir ofan er slá en nægt rými er fyrir þurrkara.
Geymsla er 10,5 fm
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is