Eirhöfði 7a (101) 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Íbúð 101 er 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á 1.hæð með víðáttumiklu útsýni og bílastæði í bílakjallara. Hlýlegt heimili með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum, flísalögðu anddyri, baðherberbergjum og gólfi í þvottahúsi.  Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi. Stílhrein hönnun og vönduð gæði.  Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. Litaþema íbúðar er Grásteinn. Íbúðin afhendist fullbúin án megin gólfefna.

Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur. Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.

Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!

Sjá nánar á www.eirhofdi.is

Sjá vídeó sýningaríbúðir https://eirhofdi.is/syningaribudir/

Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign.

Nánari upplýsingar veitir Svam Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: er með með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Þrjú talsins með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: er opið og tengist við stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Eldhús skilast með veggofni og span-helluborði. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa og eldhús er í björtu og opnu alrými með útgengi á sérafnotareit er snýr í vestur.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Sturtur í báðum baðherbergjum með Unidrain línurist og sturtugleri. Vegghengd salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki ásamt handlaug sem situr ofan á borðplötu frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara númer B02

Geymsla 7,5 fm

Nánari upplýsingar veita

Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Íris Anna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Steinn Andri Viðarsson í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Fasteignin Eirhöfði 7a (101)

136.8 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 978.801 Kr/m²
Byggingargerð : Fjölbýlishús
Fasteignamat :
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan er giftur og á 4 dætur.

133.900.000 Kr.
Hafðu samband