Opið hús: 28.07.2026, 15:30 - 28.07.2026, 16:00

Einholt 9 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á annari hæð auk óskráðs rýmis í risi . Herbergi í kjallara með aðgang að snyrtingu. Það hentar vel fyrir unglinginn og sem vinnuherbergi.

Auk þess er geymsla í kjallara, stór garðaur og sameiginleg hellulögð verönd. Íbúðin er í rólegri götu og í göngufæri við þjónustu af fjölbreyttu tagi. Matvöruverslunin Bónus, útivistarsvæðin á Klambratúni, Listasafn Reykjavíkur og kaffihúsið á Kjarvalsstöðum eru dæmi um þjónustu rétt innan seilingar. 

Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg fast: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Falleg, björt og notaleg íbúð í tveggja hæða, fjögurra íbúða húsi í rótgróinni götu í Holtunum. 

 Gengið er inn á sameiginlegan gang og þaðan upp upp á stigapall á annarri hæð. Stór og fallegur gluggi tengir hæðirnar saman. Af stigapallinum er gengið inn í íbúðina sem er með upprunalegu eikarparketi.  

 Þegar komið er í inn í íbúðina er fyrst komið inn í hol með búrskáp sem nær frá gólfi upp í loft. Á hægri hönd er gengið inn á baðherbergi með sturtu. Gluggi er á baðherbergi.

 Á vinstri hönd er bjart eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Úr eldhúsinu er fallegt útsýni yfir vinsælan leikvöll. 

 Beint af augum er gengið inn í rúmgóða og bjarta stofu, með pottofnum og listum í lofti. Gluggar eru hvítmálaðir með djúpum og góðum gluggakistum. 

 Innaf stofunni er svefnherbergi með góðum klæðaskáp. Útfrá stofunni er gengið inn í borðstofu með innbyggðum bókahillum. Auðvelt að loka milli borðstofu og stofu og nýta rýmið sem herbergi,með inngangi frá forstof. Viðarstigi gengur frá borðstofunni upp í ris sem sem er jafnstórt íbúðinni að gólffleti en er ekki í fullri hæð. Það nýtist vel sem leik- eða svefnherbergi. Á björtum sumarkvöldum eða stjörnubjörtum vetrarkvöldum er töfrandi að horfa upp í himinninn gegnum loftgluggann í risinu.   Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, rúmgóð geymsla og rúmgott herbergi sem er tilvalið fyrir unglinginn eða heimaskrifstofuna. 


Fasteignin Einholt 9

71.8 3 Herbergi 2 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1940
Fermetraverð : 835.515 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 58.150.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

59.990.000 Kr.
Hafðu samband