Dverghamrar 24 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir til sölu: 183,2 fm efri sérhæð í tvíbýli við Dverghamra 24 í Grafarvoginn. Húsnæðið skiptist í stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu(mögulega svefnherbergi), 3 svefnherbergi, nýlegt eldhús, nýlegt baðherbergi, þvottahús og rúmgóðan bílskúr. Út frá stofu er sólpallur með skjólveggjum. Falleg eign með góðu útsýni í barnvænu umhverfi. Laus við kaupsamning.

Nánari lýsing eignar: 
Komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. 

Falleg stofa og borðstofa með mikilli lofthæð. Útgengi er úr stofu út á stórar svalir og sólpall við enda hússins.

Sjónvarpsstofa sem gæti verið fjórða svefnherbergið. ,

Rúmgott nýlegt eldhús með góðu skápaplássi ásamt eyju. Flísar eru á gólfum og granítt á borðum, góð lofthæð.

Baðherbergi er flísalagt með rúmgóðri sturtu og baðkari.
Hjónaherbergi er parketlagt með góðum fataskápum.

Tvö svefnherbergi með parketi á gólfium.

Inngengt er úr eldhúsi inn í sér þvottahús.

Innbyggður bílskúr með rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. 

Gott útsýni er frá eigninni, staðsetning er góð með tilliti til skóla og leikskóla.

Nánar upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Fasteignin Dverghamrar 24

183.2 6 Herbergi 3 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1987
Fermetraverð : 741.812 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 107.450.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

135.900.000 Kr.
Hafðu samband