Opið hús: 10.08.2026, 17:00 - 10.08.2026, 17:30

Dugguvogur 7 104

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg / Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali kynna til sölu fallega og vel skipulagða 2-3ja herbergja íbúð með mikilli lofthæð, merktu bílastæði í bílageymslu, 4 fm svölum með svalalokun ásamt 12,8 fm sérafnotaflöt, í nýlegu fjölbýlishúsi við Dugguvogi 7 í Reykjavík.
Eignin er á jarðhæð og er teiknuð og skráð sem tveggja svefnherbergja en milliveggur fyrir barnaherbergi var fjarlægður og nýtist því eignin í dag sem rúmgóð 2ja herbergja íbúð.
Auðvelt er að bæta við millivegg og breyta eigninni í 2ja svefnherbergja íbúð.

Vandað hús byggt af ÞG Verk árið 2021 - Frábær kostur fyrir fyrstu kaup


Allar nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is


Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Eru 4,0 fermetrar að stærð með svalalokun og svalagólf klætt með viði.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, bakaraofn og vifta, stillanleg lýsing er undir efriskápum í eldhúsi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og stórum fataskápum.
Milliveggur fyrir barnaherbergi var fjarlægður, því nýtist eignin í dag sem rúmgóð 2ja herbergja íbúð. Auðvelt er að setja upp vegg svo hún nýtist sem 3ja herbergja íbúð.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 6,7 fermetrar að stærð með mikilli lofthæð.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring á bílakjallara. Merkt (D7105)


Allar nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 / throstur@miklaborg.is


Fasteignin Dugguvogur 7

65.2 3 Herbergi 2 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2021
Fermetraverð : 1.035.276 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 62.500.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

þrö
Þröstur Þórhallsson
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

67.500.000 Kr.
Hafðu samband