Drekavellir 24B 221

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir: Mjög fallega, bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í glæsilegu og viðhaldsléttu litlu fjölbýli á Völlunum í Hafnarfirði. Eignin er einstaklega vel skipulögð og á vinsælum stað í rólegu hverfi.


Nánari lýsing:

Forstofa með skáp og hol sem tengir saman rýmin. Stofan er rúmgóð og björt með útgengi á suðursvalir.
Eldhúsið er fallegt og opið inn í stofuna með vandaðri innréttingu og keramikhelluborði
Innaf eldhúsi er þvottaherbergi með góðu vinnuplássi
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með fataskápum
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með vandaðri innréttingu, sturtuklefi og baðkar
Flísalögð geymsla er innaf holi

Parket er á gólfum og gólfhiti í öllum rýmum með hitastýringu fyrir hvert rými
Húsið er klætt að utan og viðhaldslétt. Sameignin er snyrtileg og garðurinn vel hirtur
Góð eign sem býður upp á þægilegt og bjart heimili í frábæru umhverfi þaðan sem stutt er í verslanir og ýmis konar þjónustus s.s. íþróttastarf Hauka og fleira mætti telja til. Íbúðin getur verið laus tiltölulega fljótt.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Drekavellir 24B

92.5 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2005
Fermetraverð : 755.676 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 69.150.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
69.900.000 Kr.
Hafðu samband