Dalsmúli 1 (Orkureitur A) 302 108

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Virkilega falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í glæsilegu lyfturhúsi við Orkureitinn. Samkvæmk HMS er eignin skráð 97,8 fm, íbúðarhlutinn er 87,7 fm og geymsla 10,1 fm. Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi, baðherbergi, tvö góð svefnherbergi, eldhús og stofu í björtu alrými. Útgengt út á svalir frá stofu, gott útsýni úr íbúð yfir laugardalinn. Íbúðin er með vönduðum innréttingum frá Nobilia(sölu og þjónustuaðili er GKS).

Nánari upplýsingar veitir Bára Gunnlaugsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is


Nánari lýsing:

Forstofa með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.

Baðherbergi er með sturtu, fallegri innréttingu með hringlaga upplýstum spegli fyrir ofan innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. Ljós gráar flísar á gólfi og hluta að veggjum. Svört blöndunartæki í sturtu og handlaugartæki við vask.

Eldhús: Falleg hvít innrétting frá GKS. Skápar ná upp í loft. Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Parket á gólfi.

Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa í alrými eignar. Opin og björt borðstofa og stofa. Frá stofu er útgengt út á norðvestur svalir með útsýni til norðurs. Parket á gólfi.

Svefnherbergi : Tvö rúmgóð svefnherbergi. Í hjónaherbergi eru fataskápar. Parket á gólfi.

Sameign: Virkilega falleg sameign. Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.


Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina „Excellent. Allar íbúðir við Dalsmúla hafa jafnframt fengið Svansvottun. Hver íbúð hefur jafnramt sitt eigið loftræstikerfi sem hægt er að stilla eftir þörfum og eykur loftgæði og sparar orku um leið.


Nánari upplýsingar veitir Bára Gunnlaugsdóttir, sími: 899-8809, netfang: bara@miklaborg.is



Fasteignin Dalsmúli 1 (Orkureitur A) 302

97.8 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.094.070 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 70.750.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

bara
Bára Gunnlaugsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Bára lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2023.  Hún er einnig menntuð innanhússarkitekt og útskrifaðist í mílanó 2007. Bára hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist heimilum og hönnun, allt frá skipulagi og stíl til notagildis og andrúmslofts. Hún er búsett í kópavogi, gift og á 3 börn. 

107.000.000 Kr.
Hafðu samband