Dalaland 5
108 ReykjavíkDalaland 5 108
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Snyrtileg 4ra herbergja íbúð í þriðju og efst hæð með góðu útsýni við Dalaland 5. Eignin er 84,4 fm og skiptist í rúmgóða stofu með stórum svölum til suðurs, eldhús, baðherbergi og tvö önnur herbergi en búið er að sameina þau í eitt stórt en auðvelt að breyta því aftur. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofugangur með fataskáp. Rúmgott hol inn af því sem leiðir í önnur rými íbúðarinnar. Stofan er rúmgóð með útgengi út á suður svalir sem eru meðfram íbúðinni. Hjónaherbergi við hlið stofu. Annað stórt herbergi sem var áður tvö barnaherbergi(sjá teikningu). Eldhús með eldri innréttingu og litlum borðkrók. Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að mestu. Góð innrétting með vask og skápum, baðkar og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðinu. Gólfefni eru harðparket og flísar. Skápar er á stigapalli sem tilheyrir íbúðinni. Íbúðin er skráð 79,5 fm en það vantar 4,9 fm sem er óskráð samkvæmt skráningartöflu sem fylgir húsinu. Hjólageymsla er í kjallara.
Framkvæmdir við skipti á skólplögn inn í húsið og dren er að fara í gang en seljandi greiðri þær viðgerðir.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni. Verið er að skipta um skólplagnir inn í húsið sem seljandi greiðir.
Frábærlega staðsett íbúð í Fossvogsdal.
Nánari upplýsingar veitir Svan G Guðlaugsson, sími: 697 9300, netfang: svan@miklaborg.is.