Brekkuhjalli 3 200

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Hlýleg, björt og notaleg neðri hæð og frábært fjölskylduheimili í Suðurhlíðum Kópavogs, ásamt bílskúr og stæði þar fyrir framan. Hæðin er sérlega vel skipulögð og er með fjórum svefnherbergjum og endurnýjuðu baðherbergi. Arkitekt hússins er Guðmundur Gunnlaugsson en hann er m.a. þekktur fyrir að greina útsýni og sólaráttir og leggur mikið upp úr því að hús falli eðlilega að landslagi. Það hefur tekist sérlega vel með Brekkuhjalla 3 sem mikil prýði er að, að innan sem utan. Birta er það sem kemur fyrst í huga þegar komið er inn í íbúðina en verönd er í suður og gluggar í stofu eru stórir. Stofa og eldhús njóta sín vel í opnu rými og fjögur svefnherbergi á efri palli eru öll rúmgóð. Fallegt eikarparket er á gólfum utan blautrýma sem eru flísalögð.


Eignin er skráð hjá HMS sem 159,2 fm og skiptist í 130,2 fm íbúð og 29 fm bílskúr.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Steinteppi á gólfI, rúmgóðir fataskápar

Eldhús: Falleg innrétting með granít í borðplötum. Span helluborð með háf yfir og innbyggð Miele uppþvottavél og ofn.

Stofa:  Er meðfram suðurhliðinni í beinu framhaldi af eldhúsi, þar njóta sín vel stórir gluggar með stórkostlegu útsýni yfir Kópavog, upp í Bláfjöll til austurs og út á sjó til vesturs. Tvær útgöngudyr eru út á viðarverönd sem eru meðfram allri suðurhlið hússins.

Sólpallur: Sérstök prýði og hefur fengið afar gott viðhald í gegn um árin. Sólríkur og skjólsæll og einstakur staður til að eiga notalegar stundir hvenær sem er dagsins.

Sjónvarpshol: Gengið er upp 4 þrep í svefnherbergisálmu með opnu sjónvarpsholi fyrir framan svefnherbergin.

Svefnherbergi: Fjögur talsins en eitt þeirra er nýtt í dag sem fataherbergi.

Baðherbergi: Endurnýjað fyrir um þremur árum. Gólf og veggir eru með fallegum flísum. Upphengd salernisskál, sturta með glervegg, handklæðaofn og gluggi með opnanlegu fagi.

Þvottahús:  Innan íbúðar. Flísar á gólfi og með hillum og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara. 

Bílskúrinn er snyrtilegur en hann er með hurðaopnara og með vatni og rafmagni. 


Húsið að utan ásamt þakjárni hefur verið málað á síðustu fimm árum. Aðkoma að húsinu er góð, hiti er í bílaplani, stéttum og tröppum.


Fjölskylduvæn eign í einu eftirsóttasta hverfi höfuðborgarsvæðinsins. Stutt í skóla, almenningssamgöngur, verslanir og ýmis konar þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is


Fasteignin Brekkuhjalli 3

159.2 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1993
Fermetraverð : 791.457 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 115.300.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
126.000.000 Kr.
Hafðu samband