Opið hús: 15.09.2026, 12:00 - 15.09.2026, 12:30

Breiðhöfði 17 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Nýjar íbúðir við Breiðhöfða 15-19 sem njóta góðrar birtu með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Tengingar við umhverfi með hjóla- og göngustígum og framtíðarsýn Borgarlínu.

Íbúðunum er skilað fullbúnum með vönduðum innréttingum og gólfefnum frá Parka. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft sem skapar glæsilegt yfirbragð og hámarkar geymslupláss. Eldhús eru útbúin vönduðum Siemens-raftækjum þar með talinn innbyggður ísskápur og uppþvottavél, steinn er á borðplötum innréttinga.  Flestum íbúðum fylgir bílastæði í bílakjallara.

 

Íbúð 105 er 3ja herbergja íbúð á 1. hæð skráð stærð 110,2 fm þar af geymsla 15,2 fm og bílastæði í bílakjallara nr. B06. íbúðin skiptist í alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi og þvottahús. 8 fm svalir eru út frá stofu. Til afhendingar fljótlega.


Sölusíða verkefninsins er hér


Bókið skoðun hjá Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltum fasteignasala í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Myndir í auglýsingu geta verið úr öðrum íbúðm en sú sem er auglýst.


Nýjar glæsilegar nýjar íbúðir við Breiðhöfða 15-19. Hverfið er skipulagt með það að leiðarljósi að öll helsta þjónusta sé í göngufæri. Þá tengist það helstu samgönguæðum borgarinnar. Stutt er í græn svæði, göngu- og hjólastíga auk þess sem almenningssamgöngur verða öflugar með fyrirhugaðri borgarlínu. Borgarhöfðinn býður upp á líflegt borgarumhverfi þar sem þægindi, gæði og framtíðarsýn fara saman.  


Byggingaraðili verkefnisins er Skuggi.



Nánari upplýsingar gefa:

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða kjartan@miklaborg.is

Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is


Fasteignin Breiðhöfði 17

110.2 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2026
Fermetraverð : 1.066.243 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 41.050.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

117.500.000 Kr.
Hafðu samband