Brautarás 10 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilegt raðhús á pöllum ásamt sérstæðum bílskúr í skjólgóðri botnlangagötu að Brautarási 10 í Reykjavík. Stutt í skóla, leikskóla, Árbæjarlaug, alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Eignin skiptist í eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpskrók í opnu rými, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og 2ja herbergja aukaíbúð í kjallara/jarðhæð með sérinngangi, auk sérstæðs bílskúrs.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali: kristin@miklaborg.is, s:8241965.

Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi. Á vinstri hönd frá forstofu er rúmgott herbergi. Á hægri hönd er mjög rúmgott þvottahús, þar sem áður var eldhús, með miklu skápaplássi og glugga. Inn af þvottahúsinu er gestasnyrting. Frá forstofu er gengið upp á miðpall þar sem eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpskrókur eru í björtu og fallegu alrými sem snýr í vestur, með aukinni lofthæð. Eldhúsinnréttingin er frá HTH, tveir ofnar í vinnuhæð spanhelluborð á eyju, tæki frá AEG. Fallegur arinofn með glerhurð, sem skapar hlýlegt og notalegt andrúmsloft, er í stofu og þaðan er gengið út á vestursvalir en frá þeim er stigi niður í garð með góðum palli og heitum potti. Frá alrými er gengið upp á efsta pall. Þar eru rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Á efsta palli er einnig rúmgott baðherbergi með "walk in" sturtu með innfelldum blönduartækjum, upphengdu salerni og skápum. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Frá forstofu er gengið niður í séríbúð í kjallara/jarðhæð, með sérinngangi frá vesturhlið hússins. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofurými, rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og mjög rúmgott baðherbergi með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni, góðu skápaplássi og fallegum flísum á gólfi og veggjum að hluta, tengt er fyrir þvottavél og þurrkara. Parket er á öllum gólfum hússins nema votrými eru flísalögð. Hiti er í gólfum í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi á efsta palli. Bílskúrinn er með hita, vatni, rafmagni og gluggum. Ný mótordrifin bílskúrshurð er á bílskúrnum og fylgja henni tvær fjarstýringar. Fyrir framan bílskúrinn eru þrjú bílastæði. Auk þess eru bílastæði við enda götunnar sem nýtast vel sem gestastæði. Að sögn seljanda hefur eignin fengið gott viðhald og var mikið endurnýjuð á árunum 2018 og 2019 og innra skipulagi einnig breytt: Eldhús var endurnýjað, einnig þvottahús, baðherbergin sem og öll neðsta hæðin endurnýjuð og endurskipulögð, skipt var um öll gólfefni og hiti lagður í gólf forstofu, þvottahúss og baðherbergis á efri palli.

Nánari uppl. veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fast. : kristin@miklaborg.is, s:8241965.


Fasteignin Brautarás 10

217.1 7 Herbergi 2 Stofur 5 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1979
Fermetraverð : 732.381 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 121.950.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

Kristinpeturs
Kristín Pétursdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Kristín er löggiltur fasteignsali frá árinu 2003 og hefur starfað á Mikluborg frá árinu 2020. Hún er fædd og uppalin vestur á Bíldudal og heldur mikilli tryggð við Vestfirði. Kristín býr í Kópavogi, er gift og á tvö uppkomin börn. Áhugamál eru samverustundir með fjölskyldu og vinum en einnig útivist í fallegri náttúru, ferðalög, sögulegur fróðleikur og tónlist. 

159.000.000 Kr.
Hafðu samband