Borgartún 24A 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg og Kristín Pétursdóttir lögg . fasteignasali kynna: Fallega og vel skipulagða íbúð á 2. hæð með sérinngangi. Einnig er aðkoma i gegnum sameiginlegan inngang með lyftu frá jarðhæð.

Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu, herbergi, svalir og geymslu í kjallara. Tvennar stórar sameiginlegar þaksvalir með stórkostlegu útsýni.

Góð staðsetning í hjarta borgarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, sími: 8241965, netfang: kristin@miklaborg.is.

Nánari lýsing:

Um er að ræða fallega íbúð á 2. hæð í nýlegri byggingu við Borgartún 24A. Íbúðin er með sérinngangi frá hellulögðum inngarði, fyrir framan inngang íbúðarinnar er hellulagður sérafnotaflötur.

Anddyri með hvítum skápum. Rúmgott baðherbergi með glugga, flísar á gólfi og veggjum upp í loft á tvo vegu, innrétting, walk in sturta, tengt fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa eru í opnu rými. Eldhúsið er með dökkri innréttingu og góðu skápaplássi. Eldhústæki eru frá Siemens, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Frá stofu er gengið út á svalir í suðaustur. Í stofu er frístandandi veggur sem skilur svefnherbergi frá stofurýminu og er því hægt að ganga inn í svefnherbergið frá eldhúsi og stofu. Í svefnherbergi er hvítur fataskápur sem nær upp í loft.

Á gólfum anddyris, eldhúss og svefnherbergis er harðparket með hvítum gólflistum.

Í kjallara er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu í sameign.

Bókið skoðun: Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, s:8241965, netfang: kristin@miklaborg.is

Fasteignin Borgartún 24A

60.1 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2024
Fermetraverð : 1.044.925 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 61.800.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Kristinpeturs
Kristín Pétursdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Kristín er löggiltur fasteignsali frá árinu 2003 og hefur starfað á Mikluborg frá árinu 2020. Hún er fædd og uppalin vestur á Bíldudal og heldur mikilli tryggð við Vestfirði. Kristín býr í Kópavogi, er gift og á tvö uppkomin börn. Áhugamál eru samverustundir með fjölskyldu og vinum en einnig útivist í fallegri náttúru, ferðalög, sögulegur fróðleikur og tónlist. 

62.800.000 Kr.
Hafðu samband