Borgahella 9L 221

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir: Atvinnuhúsnæði við Borgahellu 9 Hafnafirði. Um er að ræða staðsteypt atvinnuhúsnæði fyrir léttan iðnað. Eignin er skráð nr 0112 sem er 175fm á stærð og á tveimur hæðum. Neðri hæðin er skráð 87,4 fm og lofthæð þar er 4,5m. Á neðri hæð er innkeyrsluhurð með 4,2m hæð. Efri hæðin 87,6 fm og lofthæð þar er 2,4-4,5m, útgengt á 5,2fm svalir frá efri hæð. 40 fm sérafnotaflötur undir bílastæði fyrir framan hús.

Tilbúin til afhendingar, þó verður bílaplan malbikað sumarið 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is


Húsnæðið selt á byggingarstigi 3. Eigninni skilast í samræmi við skilalýsingu seljanda. Lóð skilast fullkláruð. Olíuskilja er á niðurfalli á neðri hæð.

Einnig er eigandi tilbúinn að leigja húsnæðið.

Frágangur innanhúss:
Allir veggir eru slípaðir, grunnaðir og málaðir. Einungis léttir milliveggir á baðherberginu á 1. hæð og epoxy á gólfi.  Gólfið á 1. hæð er vélslípað og rykbundið en gólfin á 2. hæð eru flotuð. Steypt loft er slípað, grunnað og málað. Á 2. hæð eru stálbitar og sperrur, búið er að ganga frá rakavarnarlaginu en ekki taka loftið niður né klæða. Lýsingin verður fest í sperrur, reiknað er með að kaupandi gangi endanlega frá lofti á 2. hæð. Eldvarnar hurð frá Glófaxa á brunagangi. Aðrar innihurðir fylgja ekki. Bílskúrshurðir frá Vögnum og Þjónustu. Baðherbergi á 1. hæð er búið að koma fyrir upphengdu klósetti og vaski. Eignin skilast með lagnagrind sem auðvelt er að bæta við. Lagnir eru samkvæmt teikningu. Einn iðnaðarblásari er í hverju rými til upphitunar. Reiknað er með ofnum á efri hæð sem kaupandi sér um að koma fyrir. Iðnaðarlampar á efri og neðri hæð ásamt neyðarlýsingu. Kubbaljós fyrir framan hvert bil. Kúpull á baðherbergi niðri. Loftræsting á baðherbergi niðri. Ásamt túðu á efri hæð. Rafmagnstafla er tilbúin í hverju bili. Ljós og bílskúrhurðaropnari verður tengdur. Eignin skilast fullfrágengin að utan sem og lóð verður malbikkuð með niðurföllum og olíuskilja í niðurföllum.. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan með smábáru. Gluggar og hurðir eru úr álklæddu timbri.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Borgahella 9L

175.0 0 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Fermetraverð : 451.429 Kr/m²
Byggingargerð : Iðnaður
Fasteignamat : 5.990.000

Nánari upplýsingar veitir:

steini
Steinn Andri Viðarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Steinn útskrifaðist sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2023. Hann hefyr brennandi áhuga á golfi og knattspyrnu. Steinn er Liverpool maður og er búsettur í Grafarvogi ásamt unnustu og syni.

79.000.000 Kr.
Hafðu samband