Opið hús: 26.04.2026, 13:00 - 26.04.2026, 13:30

Blönduhlíð 23 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Stóra 2ja herbergja íbúð með suður-verönd og möguleika á aukaherbergi á vinsælum stað í Hlíðunum. Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttastarf og alla helstu þjónustu. Íbúðin er skráð 79,8 fm samkvæmt fasteignaskrá og eru allir fermetrar innan íbúðar.

Nánari lýsing

Komið er inn um sameiginlegan inngang í breitt hol sem tengir saman alla hluta íbúðarinnar. Baðherbergi er með upphengdu salerni, innréttingu fyrir ofan vask og sturtuklefa. Eldhús er með góðu skápa- og vinnuplássi og borðkrók við glugga. Mögulegt væri að búa til auka svefnherbergi með að færa eldhús fram á gang (sjá tillögu frá arkitekt í myndahluta). Stofan er björt og rúmgóð með sjarmerandi bogadregnum gluggum sem vísa út í suðurgarð. Frá stofunni er útgengi út á sólríka hellulagða verönd. Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskáp. Geymslan er innan íbúðar og er í dag notuð sem skrifstofa með opnanlegum glugga. Snyrtilegt sameiginlegt þvottahús er í sameign.


Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasala


Allar nánari upplýsingar veita

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 8222-307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Blönduhlíð 23

79.8 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1952
Fermetraverð : 783.208 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 65.700.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

62.500.000 Kr.
Hafðu samband