Opið hús: 01.02.2026, 13:00 - 01.02.2026, 13:30

Blikahólar 2 111

Reykjavík

Lýsing

***Frábær fyrstu kaup***
Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi við Blikahóla 2.
Íbúðin er á 6. hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi með lyftu. Rýmið er bjart og hlýlegt með góðu flæði og svölum úr aðalrými með notalegu útsýni yfir Elliðavatn.
Frábær fyrsta eign eða fyrir þá sem vilja bjarta, vel skipulagða og vel staðsetta íbúð í snyrtilegu lyftuhúsi.

Nánari lýsing:

Anddyri/hol: Komið er inn í hol. Úr holi er gengið inn í önnur rými íbúðar. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.

Eldhús: Er með góðu skápaplássi og útsýnisglugga. Parket á gólfi.

Aðalrými: Rúmgott og bjart alrými með notalegu útsýni yfir Elliðavatn. Frá alrými er útgengi út á svalir. Parket á gólfi.

Geymsla/sameign: Geymsla er rúmgóð. Hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Stigagangur og lyfta eru í góðu ásigkomulagi. Hægt er að koma inn í sameign beggja megin við húsið.


Stutt í alla helstu almenna þjónustu.


Allar nánari upplýsingar veita

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is


Fasteignin Blikahólar 2

59.1 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1973
Fermetraverð : 759.729 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 44.900.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

44.900.000 Kr.
Hafðu samband