Bjarmaland 16 108

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Bjarmaland 16

Einstakt og glæsilegt 532,8 fm einbýlishús á frábærum stað í Fossvogsdal – stór og gróðursæl suðurlóð, rúmgóðar stofur, fjölmörg svefnherbergi og ótrúleg afþreyingaraðstaða í kjallara með bíósal, líkamsrækt, pool-herbergi og bar.

Hér er um að ræða einstaka eign sem lætur lítið fyrir sér fara að utan en kemur svo sannarlega á óvart þegar inn er komið. Húsið er mun stærra og umfangsmeira en útlitið gefur til kynna og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir stóra fjölskyldu.

Húsið stendur á fallegri og gróðursælli lóð sem snýr í suður. Úr borðstofu er gengið um stóra rennihurð út á góðan sólpall og áfram út í glæsilegan garð.

Eignin hefur verið endurbyggð að hluta og skipt hefur verið um hluta glers á aðalhæðinni. Í risi er rúmgott herbergi með baðherbergi inn af, góðu skápaplássi og útgengi á suðursvalir. Rýmið getur nýst sem svefnherbergi, hjónasvíta eða rúmgóð skrifstofa.

Í kjallara hefur verið útbúin sérlega glæsileg afþreyingar- og tómstundaaðstaða. Þar er meðal annars bíósalur, líkamsræktaraðstaða, pool-herbergi, eldhús/bar og snyrting.

Samkvæmt skráningu HMS er húsið samtals 532,8 fm.


Nánari upplýsingar veitir:

Böddi, löggiltur fasteignasali
Sími: 821 6300
Netfang: boddi@miklaborg.com

Nánari lýsing:

Aðalhæð

Forstofa:
Flísalögð forstofa með hvítum fataskápum. Inn af forstofu er parketlagt herbergi. Þar er jafnframt flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðaofni og steyptum sturtuklefa.

Alrými og borðstofa:
Frá forstofu er komið inn í bjart og parketlagt miðrými hússins sem nýtist sem borðstofa. Þaðan er gengið inn á herbergis gang, í eldhús og niður tvær tröppur og inn í stofu. Úr borðstofunni er gengið um stóra rennihurð út á sólpall og áfram út í glæsilegan, gróðursælan garð.

Stofa:
Stofan er björt og rúmgóð með vönduðu, niðurlímdu stafaparketi í fallegu fiskibeinamynstri og arni.

Sjónvarpsstofa:
Úr stofunni er gengið upp tvenn þrep upp í rúmgóða sjónvarpsstofu með sams konar fiskibeinaparketi. Frá sjónvarpsstofunni er gengið áfram inn í eldhús.

Eldhús:
Eldhúsið er parketlagt með snyrtilegri hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og rúmgóðum borðkrók.

Herbergisgangur:
Frá herbergisgangi er gengið inn í þrjú svefnherbergi, aðalbaðherbergi og þvottahús.

Svefnherbergi:
Svefnherbergin á ganginum eru þrjú parketlögð og eitt er með korkflísum. Fataskápar eru í tveimur herbergjanna.

Upphaflega voru fimm herbergi á ganginum en fjórum þeirra var breytt í tvö mjög rúmgóð herbergi. Tiltölulega einfalt ætti því að vera að breyta skipulaginu aftur og fjölga svefnherbergjum ef þess er óskað. (sjá teikningu)

Aðalbaðherbergi:
Rúmgott baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting með tveimur handlaugum, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og steyptur sturtuklefi. Hiti er í gólfi.

Þvottahús:
Flísalegt þvottahús með góðri innréttingu, skápaplássi og vaski.

Ris

Í risi er rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og baðherbergi inn af. Úr herberginu er gengið út á suðursvalir (þaksvalir).

Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og getur meðal annars nýst sem svefnherbergi, hjónasvíta, skrifstofa eða vinnuaðstaða.

Kjallari

Í kjallara hefur verið útbúin einstaklega glæsileg afþreyingar- og tómstundaaðstaða sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir alla fjölskylduna.

Þar er meðal annars:

  • Sérútbúinn bíósalur
  • Líkamsræktaraðstaða
  • Pool-herbergi
  • Eldhús og bar
  • Snyrting
  • Tæknirými
  • Fleiri góð afþreyingar- og tómstundarými

Framkvæmdir við kjallara

Við gerð kjallarans var ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir. Byrjað var á að grafa undir húsið til að kanna undirlag þess. Þegar komið var niður á móhellu var metið að framkvæmdin væri möguleg.

Framkvæmdirnar voru unnar samkvæmt verkfræðihönnun frá Verkfræðistofu Ívars Haukssonar. Steyptir voru burðarveggir, að jafnaði um 30 cm þykkir, undir útveggi hússins og eftir miðju þess. Auk þess var stálstoðum komið fyrir þar sem þörf var á.

Drenlögn var lögð undir gólfplötu og brunndæla sett upp í tæknirými. Þar er jafnframt loftræstieining fyrir kjallarann.

Skipulag og innréttingar kjallarans voru hönnuð af Ernu Geirlaugu innanhússarkitekt. Lýsing var hönnuð af Helga Má Hannessyni hjá Teknik verkfræðistofu og sama stofa hannaði loftræstikerfið. Norðurljósa hljóðtækni hannaði og lagði til hljóðkerfi.

Engu var til sparað við hönnun og framkvæmdir. Fyrir liggja verkfræðiteikningar, hönnunargögn og ljósmyndir frá framkvæmdartímanum.

Samantekt

Bjarmaland 16 er sannkölluð fjölskylduparadís á einum eftirsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins. Húsið er einstaklega rúmgott, stendur á fallegri suðurlóð og býður upp á fjölmarga nýtingarmöguleika.

Glæsilegur garður, góðar stofur, sveigjanlegt herbergjaskipulag og einstök afþreyingaraðstaða í kjallara gera þetta að eign sem á sér fáa líka.

Hús sem þarf að skoða til að átta sig á stærðinni, gæðunum og öllum þeim möguleikum sem það hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veitir:

Böddi, löggiltur fasteignasali
Sími: 821 6300
Netfang: boddi@miklaborg.is


































































































Fasteignin Bjarmaland 16

532.8 9 Herbergi 2 Stofur 6 Svefnherbergi 5 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1968
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 384.550.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Böddi
Böðvar Þ. Eggertsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Böddi starfaði áður sem hárgreiðslumaður í 34 ár og hefur mjög góða reynslu í mannlegum samskiptum. Hann hefur einnig unnið við að hanna innanhúss, hótelíbúðir, viðburðarhús og tvö einbýlishús á síðustu þremur árum og stýrði einnig að hluta uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Hann hefur átt og rekið hárgreiðslustofur bæði hér og í Svíþjóð. Böddi er giftur og á 4 dætur og er búsettur í Hafnarfirði. Áhugamál eru líkamsrækt og allt sem viðkemur mótorsporti og hraða.

0 Kr.
Hafðu samband