Bjarkargata 6
101 ReykjavíkBjarkargata 6 101
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegt tæplega 400 m2 einbýlishús á frábærum stað í Reykjavík. Húsið er mikið endurnýjað og meðal annars eru eldhús og baðherbergi ný standsett.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu og til hliðar eru stórar og bjartar stofur með mikilli lofthæð. Eldhús er opið við stofur og er glæsilegt með eldunareyju. Útgengt er úr eldhúsi í stóran skjólgóðan suðurgarð. Til hliðar við eldhús og á móti stofum er baðherbergi með sturtu. Á efstu hæð hússins eru tvö mjög stór svefnherbergi ásamt öðru minna. Stórt baðherbergi er á hæðinni ásamt þvottaherbergi. Fallegar suð-vestur svalir snúa að bakgarði. Á rislofti eru geymslur. Á jarðhæðinni er rúmlega 120 m2 íbúð með sérinngangi og þar eru í dag 2 stór svefnherbergi, stór stofa, baðherbergi, eldhús og geymsla. Hægt er að opna á milli hæðanna en það var áður opið á milli þeirra. Í dag er þessi íbúð í leigu. Bílskúr hefur verið breytt í stúdío-íbúð sem er í leigu. Glæsilegur garður er umhverfis húsið. Húsið hefur nýlega verið málað að utan. Eignin er öll nýendurnýjuð hið ytra auk þess sem skipt hefur verið um klóak- og drenlagnir og öll inntök í húsið eru nýleg. Eins hafa raflagnir verið endurnýjaðar og hluti neysluvatnslagna auk þess sem tölvulagnir hafa verið dregnar í allt húsið. Bæði ljósleiðari og ljósnet eru komin inn í húsið.
Frábær staðsetning rétt við Hljómskálagarðinn og tjörnina í Reykjavík.