Birkiskógar 6 311

Stafholtstungnahreppur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulagðan 54 fm sumarbústað ásamt rúmgóðum óskráðum geymsluskúr og heitum potti. Bústaðurinn stendur vel í hlíð og nýtur mikils og skemmtilegs útsýnis yfir Norðurárdal og til fjalla. Bústaðahverfið er staðsett á svæði vestan við Þjóðveg 1 á móts við Munaðarnes. Svæðið er skjólsælt og er að stórum hluta vaxið birkikjarri.


Nánari lýsing

Bústaðurinn samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhúsi, góðum sólpalli, heitum potti, gróinni lóð og góðu bílastæði. Komið er inn í forstofu með fatahengi. Gott og bjart alrými með mikilli lofthæð sem rúmar stofu og borðstofu. Innst í stofurými er eldhúskrókur með innréttingu. Baðherbergi með vask, salerni og sturtuklefa. Gólfefni eru parket á öllu nema dúkur á baðherbergisgólfi. Stór sólpallur og heitur pottur eru við húsið..


Húsið stendur á steyptum stólpum og er lagnakjallari með inntökum. Húsið er hitað upp með hitaveitu. Lóðin er 515 fm leigulóð í eigu BSRB. Leigugjald á ári er 88.000 kr.

Margar skemmtilegar gönguleiðir, stutt er í sundlaugar, til dæmis í Borgarnesi og í Varmalandi. Golfvöllur er að Hamri, rétt utan við Borgarnes og í næsta nágreni er gólfvöllurinn Glanni í námunda við Bifröst.


Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Fasteignin Birkiskógar 6

54.0 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1983
Fermetraverð : 553.704 Kr/m²
Byggingargerð : Sumarbústaður
Fasteignamat : 24.600.000

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

29.900.000 Kr.
Hafðu samband