Birkihlíð 42 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Frábær jarðhæð með sérinngangi í suðurhlíðum Reykjavíkur. Vistvæn gata, rólegt umhverfi og stutt í bæði skóla sem samgöngur. Björt íbúð með fallegri eldhúsinnréttingu, endurnýjuðu baðherbergi og þrjú góð svefnherbergi. Íbúðin getur verið laus fljótlega.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is og Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Flísalagt gólf og fataskápar með stórri spegilhurð.

Eldhús: Falleg nýleg hvít innrétting með eldunareyju þar sem er helluborð með hangandi háf yfir, góð tæki, gott skápapláss og góð lýsing. Heimilistæki nýleg.

Stofa: Björt stofa með stórum gluggum er vísa í suður. Fallegt nýtt parket á gólfum eins og annars staðar í íbúð.

Svefnherbergi: Þrjú talsins þar af hjónaherbergi með stórum fataskáp með spegla rennihurðum ásamt tveimur rúmgóðum barnaherbergjum.

Baðherbergi: Endurnýjað frá grunni þar sem skipt var um flísar, blöndunartæki og allar innréttingar.

Þvottahús: Innan íbúðar, flísalagt og stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum.

Geymsla er undir tröppum að efri hæð, utangengt.

Sameiginlegur garður með góðum grasbletti bakatil og gott pláss fyrir framan íbúð sem er hellulögð og með skjólgirðingu.
Innihurðar ásamt gólfefni hafa nýlega verið endurnýjuð.


Frábær íbúð fyrir vaxandi fjölskyldu sem vill vera í vistvænu rólegu hverfi þaðan sem stutt er í skóla, samgöngur og leiksvæði.


Nánari upplýsinga veita Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is og Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is


Fasteignin Birkihlíð 42

99.9 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1984
Fermetraverð : 869.870 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 81.650.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
86.900.000 Kr.
Hafðu samband