Opið hús: 04.05.2025, 17:30 - 04.05.2025, 18:00

Berjarimi 14 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg og rúmgóð 3ja herberja íbúð á annarri hæð(efsta) með sérmérktu stæði í bílakjallara á vinsælum stað í Rimahverfinu í Grafarvogi. Göngufæri við leik- og grunnskóla ásamt allri þeirri verslun og þjónustu sem Spöngin býður uppá.
Skv. HMS er eignin skráð samtals 110,9 fm að stærð, íbúð 78,1 fm og bílskýli 32,8 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Forstofa/hol með möguleika á góðri fatahirslu. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með tvöföldum fataskáp. Parket á gólfi.

Svefnherbergi rúmgott. Parket á gólfi.
Baðherbergi mjög stórt með góðri sturtu sem og baðkari. Flísar á gólfi og hluta veggja. Gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.

Borðstofa og stofa saman í góðu rými þaðan sem gengið er út á rúmgóðar svalir.
Eldhús er inn af stofunni. Búið að endurnýja blöndunartæki, spanhelluborð og ofn. Flísar á gólfi.

Í sameign á jarðhæð er rúmgóð hjóla og vagnageymsla með auðveldu aðgengi til og frá að aftanverðu húsinu þaðan sem komið er beint á göngustíg.

Nýlega var skipt um allt gólfefni í íbúðinni þar sem ekki eru flísar. Var þá gólfið flotað og nýtt parket lagt. Auk þess var skipt um allar hurðar innan íbúðar sem og rafmagnsrofa og tengla. Búið er að leggja fyrir uppsettningu á hleðslustöð við bílastæði í bílskýli en auk þess var húsfélagið búð að setja upp hleðslustöðvar úti á bílaplaninu fyrir framan hús.

Eins og fram hefur komið þá er búið að endurnýja hluta eignarinnar og eins hefur húsfélagið verið virkt í að sinna viðhaldi undanfarið.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Fasteignin Berjarimi 14

110.9 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1994
Fermetraverð : 617.674 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 60.750.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

diddi 2
Ingimundur Kristján Ingimundarson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

-

68.500.000 Kr.
Hafðu samband