Opið hús: 31.03.2026, 17:00 - 31.03.2026, 17:30

Austurströnd 8 170

Seltjarnarnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta 2ja herbergja endaíbúð á 4. hæð í nýlega viðgerðu lyftuhúsi við Austurströnd 8 á Seltjarnarnesi. Möguleiki er á að opna úr holi/stofu inn í eldhús og búa til lítið aukaherbergi þar sem nú er gengið inn í eldhúsið. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu á jarðhæð hússins.

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með fataskáp. Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu skápa- og vinnuplássi. Möguleiki er að færa eldhús inn í stofu og bæta við herbergi. Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp. Stofan er björt og rúmgóð með útgengi á suð-vestur svalir. Baðherbergi er með hvítri innréttingu undir vaski og hornsturtuklefa. GÓLFEFNI parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi en þar eru flísar.


Íbúðinni fylgir sérgeymsla á 2. hæð hússins (4,6 fm). Aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi er á hæðinni (bara fyrir íbúðir fjórðu hæð). Eigninni fylgir einnig aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.


Viðhald

Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu 2021.

Þakjárn var endurnýjað árið 2021.

Skipt var um 3 glugga á austurhlið í íbúðinni 2021.


Allar nánari upplýsingar veitir

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 8222307 eða olafur@miklaborg.is

Stefan Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Fasteignin Austurströnd 8

67.1 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1984
Fermetraverð : 995.529 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 58.000.000
Þvottahús : Sameiginlegt á hæð

Nánari upplýsingar veitir:

oli
Ólafur Finnbogason
Eigandi og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Ólafur Finnbogason hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2002. Ólafur er menntaður grunnskólakennari og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM). Ólafur er giftur og á tvö börn. Ólafur er uppalinn Seltirningur en býr í Vesturbænum. Ólafur er mikill áhugamaður um skot- og stangveiði. Einnig hefur Ólafur þjálfað handbolta með hléum síðan 1991.

66.800.000 Kr.
Hafðu samband