Opið hús: 22.01.2026, 16:30 - 22.01.2026, 17:15

Austurkór 79 203

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Austurkór 79, 203 Kópavogur. Mjög góð 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli á tveimur hæðum með sérinngangi og verönd. Íbúðin er á teikningu 3ja herbergja en geymsla innan íbúðar er nýtt sem herbergi. Parket og flísar á gólfum. Vel staðsett í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í margvíslega þjónustu. Góð aðkoma og næg bílastæði. Búið að setja upp hleðslustöðvar. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.


Opið hús fimmtudaginn 22. janúar kl. 16:30-17:15, allir áhugasamir velkomnir.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi - forstofuhurð.

Tvö svefnherbergi sitt hvoru megin við forstofuna með skápum í öðru þeirra.

Á ganginum er þvottahús/geymsla ásamt baðherbergi með baðkari og innréttingu.

Eldhús og stofa saman í opnu rými.

Útgengt út á verönd í suður.

Hjónaherbergi innaf stofu.

Í heildina góð íbúð með góðu innra skipulagi á eftirsóknarverðum stað í Kópavogi.

Vakin er athygli á því að eigandi íbúðarinnar tengist starfsmanni Mikluborgar fjölskylduböndum.


Nánari upplýsingar á miklaborg@miklaborg.is



Fasteignin Austurkór 79

78.1 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2013
Fermetraverð : 946.223 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 61.750.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

g
Gústaf Adolf Björnsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og íþróttafræðingur

Gústaf hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005. Hann er íþróttafræðingur að mennt og starfaði um árabil sem íþróttakennari og þjálfari í fótbolta og handbolta. Gústaf er búsettur í Kópavogi, er kvæntur, á þrjú uppkomin börn og fjögur barnabörn. Áhugamál Gústafs eru íþróttir og útivist, ferðalög og dægurmál.

73.900.000 Kr.
Hafðu samband