Opið hús: 14.05.2026, 15:00 - 14.05.2026, 15:30

Austurbrún 2 104

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Góða tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð við Austurbrún 2, 104 Reykjavík. eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu.

Stofugluggi og svalir snúa til vesturs með fallegu útsýni yfir borgina.

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp. Eldhús með eikar innréttingu og dökkri borðplötu, eldavél með ofni, viftu og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Svefnherbergi með góðum glugga til suðurs og góðum fataskáp, inni í fataskáp er búið að koma fyrir þvottavél. Stofa með stórum gluggum og útgengi út á svalir til vesturs. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk in sturtu, upphengt salerni, innréttingu með vask og speglaskáp. Hjólageymsla er á jarðhæð hússins sem og sameiginlegt þvottahús með vélum. Húsvörður er í húsinu og næg bílastæði eru við húsið.

Parket er á íbúðinni nema á baðherbergi þar sem eru flísar.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Austurbrún 2

47.6 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1960
Fermetraverð : 1.039.916 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 46.950.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
49.500.000 Kr.
Hafðu samband