Opið hús: 24.08.2026, 16:00 - 24.08.2026, 16:30

Ásvallagata 22 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir : Virðuleg húseign á tveimur hæðum og kjallara í vesturborg Reykjavíkur. Í kjallara hússins er góð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi og sér fastanúmeri. Eigninni fylgir bílskúr sem er í dag innréttaður sem stúdíóíbúð. Til er nýleg teikning af stækkun á risi hússins. Mögulegt að kaupa íbúð á efri hæðum, íbúð í kjallara eða allt húsið.

Frábær staðsetning á rólegum stað í vesturborginni. Eignin er mjög vel skipulögð en þarfnast viðhalds.

Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast. vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Nánari lýsing eignar á tveimur efri hæðum. Flísalögð ytri forstofa.

1.hæð: Þar er flísalagt hol, tvískipt stofa með massífu parketi. Svalir í vestur frá stofu. Rúmgott eldhús , AEG bakaraofn í vinnuhæð,

Tvö parketlögð svefnherbergi, gengið úr einu í annað.

Gengið upp teppalagðan stiga á efri hæðina.

2. hæð: Hol með teppi. Svefnherbergi með parketi, Tvö herbergi með rennihurð á milli. Svalir í vestur frá öðru.

Parketlagt svefnherbergi og annað við hliðina á því sem hefur verið innréttað sem fataherbergi.

Baðherbergi með baðkari.

Bílskúr hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð: Eldhús með nýlegri innréttingu, spanhelluborð með 2 hellum, bakaraofn. Opið í stofu/svefnrými.

Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, upphengt salerni.

Fallegur garður í rækt. Innkeyrsla við bílskúr með rafmagnshleðslu.


Í kjallara er góð 3ja herbergjaíbúð með sér fastanúmeri og sérinngangi.

Þar eru tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi, stofu, hol, eldhús og baðherbergi.

Geymsla fylgir og þvottahús.

Þetta er virðuleg húseign á frábærum stað í vesturborg Reykjavíkur með ýmsa notkunarmöguleika.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast. vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Fasteignin Ásvallagata 22

338.0 10 Herbergi 2 Stofur 8 Svefnherbergi 4 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1936
Fermetraverð : 765.680 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 296.800.000

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

258.800.000 Kr.
Hafðu samband