Arnarhlíð 1 102

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð í Arnarhlíð 1 með gólfsíðum gluggum og aukinni lofthæð. Íbúðin er merkt 403 og er á efstu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi á góðum stað á Hlíðarenda. Íbúðin hefur aðgengi að bílastæði fyrir framan hús sem er lokað af með hliði og því eingöngu fyrir íbúa/eigendur hússins.


Nánari lýsing

Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp.

Eldhús: Er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi og sérsmíðuðum innréttingum með steinborðplötum (Silestone). Eldhúsið er vel tækjum búið með innbyggðan ísskáp með frysti, bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, eyjuháf og innbyggða uppþvottavél.

Stofa/borðstofa: Er björt og opin inn í eldhús. Stofan rúmar borðstofuborð og góðan sófa. Frá stofu er útgengt á svalir sem snúa í suð-austur.

Svefnherbergi: Er rúmgott með fataskáp.

Baðherbergi: Er með innréttingu undir handlaug, 'walk in' sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og hluta til á veggjum við sturtu.

Þvottaaðstaða: Er inni á baðherbergi með flísum á gólfi. Rennihurð er á milli þvottaaðstöðu og baðherbergis.

Geymsla: Er skráð 3,6 fm.

Sameign: Lyfta er í húsinu og myndavéladyrasími í forstofu. Á hverri hæð hússins eru stórar skjólgóðar sameiginlegar svalir. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.


Allar nánari upplýsingar veita:

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Arnarhlíð 1

59.3 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2018
Fermetraverð : 1.128.162 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 64.900.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

66.900.000 Kr.
Hafðu samband