Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilega Penthouse íbúð á efstu hæð, 7.hæð við Ánanaust 3 í Reykjavík. Íbúðin er eina íbúðin á hæðinni í stigahúsinu. Einstök 3ja herbergja , 236,3 fm íbúð með bílskúr og tveimur bílastæðum í bílakjallara. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, þrjú baðherbergi, tvö rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu, þrennar svalir sem eru skráðar 11,7 m², 15,8 m² og 59,1 m. Einstakt sjávarútsýni og aukin lofthæð prýðir eignina.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, Löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Íbúð 701 er á 7. hæð og nýtur útsýnis í allar áttir og einnig yfir fallegan inngarð þar sem íbúar hafa aðgang að verslun og þjónustu. Íbúðarrýmið skiptist í stórar og bjartar stofur með óviðjafnanlegu útsýni og er eldhús til hliðar við stofur. Þvottahús er í íbúð og tvö svefnherbergi og er hjónaherbergi með sér fataherbergi. Sér baðherbergi fylgir báðum svefnherbergjum auk þess sem gestabaðherbergi er í alrými. íbúðin er skráð 205,5 m² með geymslu en þar fyrir utan er bílskúr skráður 30,8 m². Íbúðinni fylgja þrennar svalir sem eru skráðar 11,7 m², 15,8 m² og 59,1 m². Mögulegt er að vera með hitaveitu pott á svölum. Bílastæði eru merkt B29 og B30.

Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Íbúðin er með gólfhita.

Athugið: Myndefnið er unnið með aðstoð gervigreindar (AI).

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, Löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is



 

Fasteignin Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3

236.3 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 188.000.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

írisarna
Íris Arna Geirsdóttir
Löggiltur fasteignasali, M.A markaðsfræðingur

Íris útskrifaðist með B.Sc gráðu í Sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í Markaðsfræðum við háskóla á Ítalíu. Íris hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum og hefur meðal annars unnið sem markaðsstjóri. Íris er uppalin í Grafarvogi og býr í Úlfarsárdal ásamt eiginmanni sínum og dætur.

0 Kr.
Hafðu samband