Álfkonuhvarf 29 203

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: þriggja herbergja íbúð á 1. hæð (íbúð 102) með svölum til suðurs og stæði í lokuðum bílakjallara við Álfkonuhvarf 29 Kópavogi. Um er að ræða fjölbýlishús með lyftu sem er byggt árið 2005. Íbúðin er skráð alls 95,8 fm að stærð og þar af er geymsla 7,6 fm. Rúmgóð stofa sem rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt á svalir til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins. Gengið er inn í íbúð um sérinngang frá svalagangi, sem er lokaður að hluta með gleri. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og sérstæði í bílageymslu. Bílakjallari er með þvottastæði og búið er að koma upp rafhleðslustöðvum. Um er að ræða frábæra fjölskyldueign í þessu vinsæla hverfi í Vatnsenda í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla (Sólhvörf) og grunnskóla (Vatnsendaskóli).

*Laus við kaupsamning*

Forstofa: Með flísum á gólfi og innbyggðum skápum.
Stofa: Er rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Harðparket á gólfi, gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Nýlegur Samsung bakaraofn og spansuðuhelluborð. Stál vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask og salerni.
Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vaskur.
Geymsla: Er 7,6 fermetrar og er staðsett á jarðhæð hússins. 

Bílastæði: Er staðsett í lokuðum bílakjallara. Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar og er sameiginlegt þvottastæði í bílakjallara. 

Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:

Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is

Fasteignin Álfkonuhvarf 29

95.8 2 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2005
Fermetraverð : 771.399 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 69.050.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

steini
Steinn Andri Viðarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Steinn útskrifaðist sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2023. Hann hefyr brennandi áhuga á golfi og knattspyrnu. Steinn er Liverpool maður og er búsettur í Grafarvogi ásamt unnustu og syni.

73.900.000 Kr.
Hafðu samband