Akrasel 30 109
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Rúmgott einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð. Eigninn er skráð 362,4 fm og er tvískipt á milli hæða í dag en hægt að sameina hæðirnar á einfaldan hátt. Efri hæð 4-5 herbergja íbúð, sólskáli með heitum potti og bílskúr. Neðri hæð 2-3 herbergja íbúð ásamt bakrýmum og sólskála. Gott útsýn er frá húsinu og aðkoma góð.
Eignin stendur innarlega í botlangagötu í Seljahverfi.
Efri hæð: Forstofa, stofa og borðstofa með arni. Eldhús með borðkrók og búri. Gangur en þaðan er gengið út í sólskála með heitum potti. Verönd er fyrir framan sólskála. Gestasnyrting og þvottahús með útgengi úr húsinu. Inn af þvottahúsi er rúmgóður bílskúr með góðri lofhæð. Svefnálma með 3 svefnherbergjum og baðherbergi sem er flísalagt að hluta, stórt baðkar, innrétting með efri skápum. Einnig er geymsla á svefnherbergjagangi og útgengi út á verönd þaðan.
Neðri hæð: Sérinngangur á hlið hússins. Komið í litla forstofu. Rúmgott eldhús með aðstöðu fyrir borð. Rúmgott svefnherbergi. Stór stofa með útgengi út í stóran sólskála en þaðan er hægt að ganga út á verönd. Baðherbergi flísalagt að hluta, baðkar, sturtuklefi og innréttingar. Önnur bakrými skiptast í stórt tómstundarrými en möguleiki á auka herbergi þar. Geymsla. Þvottahús með innréttingu og saunaklefi. Gólfefni hússins eru parket, flísar og dúkur.
Eigninni hefur verið mikið breytt frá upphaflegum teikningum en mikið er af léttum veggjum í húsinu og því auðvelt að breyta skipulagi hússins.
Góð lóð er í kringum húsið. Aðkoma að húsinu er hellulögð að hluta.
Allar nánari upplýsingar gefur Gabríel Máni Hallsson í síma 772 -2661 eða gabriel@miklaborg.is og Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is