Urriðaholtsstræti 18 210

Garðabær

Lýsing

Miklaborg kynnir: fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð í lyftuhúsi við Urriðaholtsstræti 18 í Garðabæ. Íbúðin er á 2.hæð og er 68,3 fm samkvæmt FMR ásamt 7,3 fm geymslu í kjallara. Eignin skiptist í forstofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, stofu, samliggjandi eldhúsi og borðstofu með útgengi út á svalir. Góð staðsetning í Urriðaholtinu, stutt í alla helstu þjónustu,leik-og grunnskóla, golfvöllinn og útivistarsvæði. Auk þess er stutt í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuborgarsvæðisins.

***Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 65.450.000 kr***

***Eignin getur verið laus við kaupsamning***

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskápum og harðparketi á gólfum, þar næst kemur inn í baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, speglaskápi, upphengdu klósetti, walk in sturtu með sturtugleri, og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfum. Björt stofa og eldhúsið er með hvítri HTH innréttingu og er samliggjandi borstofu með útgengi út á 7,2 fm suð-vestur svalir. Geymsla er 7,3 fm í kjallara með góðri lofthæð sem nýtt er sem skrifstofuherbergi í dag.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Fasteignin Urriðaholtsstræti 18

68.3 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2020
Fermetraverð : 951.684 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 62.500.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Íris Arna Geirsdóttir
Íris Arna Geirsdóttir
Löggiltur fasteignasali, M.A markaðsfræðingur

Íris útskrifaðist með B.Sc gráðu í Sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í Markaðsfræðum við háskóla á Ítalíu. Íris hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum og hefur meðal annars unnið sem markaðsstjóri. Íris er uppalin í Grafarvogi og býr í Úlfarsárdal ásamt eiginmanni sínum og dætur.

65.000.000 Kr.
Hafðu samband