Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
TIL LEIGU: VERÐ: 275 ÞÚS Á MÁNUÐI, HÚSSJÓÐUR BÆTIST SVO VIÐ. Vel skipulögð 86,0 fm íbúð ásamt stæði í bílageymslu í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi sem er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í þjónustu verslana og þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar auðveld. TIL LEIGU.
Íbúð 607 er 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í Sunnusmára 4 með stæði í bílgeymslu merkt C07. Íbúðin skilast fullbúin með góðum eldhústækjum m.a. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar í eldhúsi baðherbergjum og svefnherbergjum eru frá Selós ehf. Íbúðin skilast með gólfefnum á öllum gólfflötum íbúðar. Á öllum rýmum er harðparket nema votrými sem eru flísalögð.
Eignin skiptist í: Hol. Stofa og eldhús í opnu rými þaðan sem útgengt er á svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Upphengd salernisskál og vönduð hreinlætistæki frá Tengi ehf. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Sérgeymsla í kjallara 7,1 fm að stærð merkt 0034.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jason Kristinn Ólafsson , s. 775-1515 - jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali