Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna 130,6fm, frábærlega staðsetta 3-4 herbergja íbúð eða skrifstofuhæð í hjarta miðborgarinnar. Eignin er í dag nýtt sem skrifstofuhæð. Eignin var öll standsett að innan árið 2017. Auðvelt er að breyta eigninni í íbúðarhúsnæði og hefur þar fjölbreytta möguleika á skipulagi, sjá teikningar. Eignin er skráð 100,4fm íbúð og þar af auki 30,2fm geymsla. Möguleiki á að nýta hluta af geymslu sem sérþvottahús. Falleg, vel skipulögð og björt eign á besta stað í miðborg Reykjavíkur.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur. Sameign snyrtileg með fallegu terrazzo gólfi. Gengið er inní rúmgott, opið og bjart rými með fallegum stórum glugga sem vísa út á Skólavörðustíginn. Í dag eru þar 2 opnar skrifstofur og biðstofa. Úr alrými er gengið í nýlega standsett baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, með sturtuklefa, upphengdu klósetti, handklæðaofni ásamt vaski og speglaskáp. Einnig er gengið í fundarherbergi og lokaða skrifstofu úr alrými.
Sérgeymsla er í kjallara. Mjög rúmgóð og býður upp á fjölbreytta möguleika hvort heldur sem er sem sérgeymsla og þvottahús, til útleigu sem lagerrými, ljósmyndastúdíó ofl.
Eignin er í dag nýtt sem skrifstofurými og nýtist mjög vel sem slík. Einnig auðvelt að gera stórglæsilega 3-4 hebergja íbúð á besta stað í miðborginni. Öll helsta þjónusta, verslun, kaffi og veitingahús í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar gefur Hreiðar Levý lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@miklaborg.is