Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs, að innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni. Allflestum íbúðum fylgja 1-2 stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 - jko@miklaborg.is - sýnum daglega.
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Athugið að innimyndir eru teknar úr sýningaríbúð 505 v. Austurhöfn og endurspegla ekki endilega þá íbúð sem hér er kynnt heldur frekar sýndar til að gefa betri mynd af innréttingum og ásýnd íbúða.
Íbúð 515 er á fimmtu og sjöttu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðin er skráð 126,2 fm og er 13,5 fm geymsla fylgir í neðri kjallara(merkt -111 á teikningu). Komið er inn í forstofu sem leiðir inn til stofu/eldhús. Til hliðar við forstofu er gestasnyrtin. Svefnherbergi er með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í alrými með eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á 9 fm svalir sem snúa í suður. Innan íbúðar er stigi uppá efri hæð. Efri hæðin er skráð 48,5 fm og skiptist í stofu/skrifstofu, norðursvalir, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi og fataherbergi. Íbúðin hefur aðgang að stæði (nr. 98) í neðri bílageymslu sem ekið er í frá innkeyrslu Hörpu og einnig Hafnartorgs.