Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Opið hús mánudaginn 8. ágúst kl. 16:00 - 16:30 Ljósheimar 4 íbúð 604 - Falleg og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á 6. hæð við Ljósheima 4. Íbúðin er skráð 108,6 fm, þar af geymsla á jarðhæð 5,9 fm. Lyfta í húsinu. Tvennar svalir til austurs og vesturs. Rúmgóð og björt íbúð. Sameignin er mjög vel umgengin og snyrtileg. Mjög vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík þar sem er stutt i alla helstu þjónustu.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali.
íbúðin er laus strax við kaupsamning.
Nánari lýsing: Lyftuhús, 6. hæð. Komið inní hol. Frá holi er baðherbergi með baðkari. Pláss fyrir þvottavél. Veggir hálfflísalagðir, nýleg innrétting. Gluggi á baðherbergi.
Eldhúsið er rúmgott, eldri innrétting, snyrtileg, borðkrókur, gluggi í austur.
Í svefnálmu eru tvö svefnherbergi. Gangur er rúmgóður, eldri skápar fjarlægðir.
Hjónaherbergið snýr í austur og frá því er gengið á austur svalir. Nýir fataskápar.
Stofan er rúmgóð og björt og þaðan gengið út á vestur svalir.
Gólfefni er nýtt harðparket nema dúkur á baðherbergi.
Sér geymsla í kjallara sem er 5,9 fm, með glugga.
Íbúðin er í dag 3ja herbergja en skv teikningu er hún 4ra herbergja en fyrir vikið er stofan mjög rúmgóð og auðvelt að stúka af herbergi.
Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í kjallara.
Húsið er klætt að utan og lítur vel út. Skipt var um lagnir undir húsinu fyrir nokkrum árum.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 jko@miklaborg.is löggiltur fasteignasali.