Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir nýtt í einkasölu: Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt fullbúnum bílskúr (26fm). Endurnýjaðar innréttingar, granít á borðum og svalalokun. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Eignin telur gott alrými þ.e stofu og eldhús. Þrjú svefnherbergi (búið er að sameina barnaherbergi) og baðherbergi. Geymsla í sameign. Bókaðu þína skoðun hjá Atla fasteignasala í síma 899-1178 eða atli@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri / hol með fataskápum, parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar sólríkar svalir sem snúa að baklóð / græt svæði. Eldhúsið er búið að opna að hluta við stofuna, þar er hvít fín innrétting með granít á borðum og borðkrókur. Innbyggður tvöfaldur ísskápur fylgir. Svefnherbergin eru skv. teikningu þrjú en í dag er búið að opna á milli barnaherbergja, góðir fataskápar eru í herbergjum og parket á gólfi. Baðherbergið er flísalagt og snyrtilegt með hvítri innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu, tengi fyrir þvottavél / þurrkara.
Eigninni fylgir geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla / vagnageymslu / fundarherbergi. Bílskúrinn er fullbúinn með opnara, gluggum, heitu og köldu vatni.
Þetta er talsvert endurnýjuð og vel skipulögð eign í góðu fjölbýli. Stutt í ýmsa þjónustu.
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson sími 899-1178 eða atli@miklaborg.is