Húsið er hluti af hinu svonefnda Hafnartorgi, nýjum og glæsilegum byggingum sem setja nýja svip á miðbæinn við höfnina.
Gengið er inn í stigaganginn frá göngugötu milli húsanna en einnig ná bæði stigi og lyftur niður í bílakjallarann undir húsunum. Stigangur er rúmgóður.
Íbúðin er með hárri lofthæð og stórum gluggum sem einkenna íbúðina sem og allt húsið.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fataskáp.
Þvottahús: Er til vinstri úr forstofu.
Aukaherbergi. Opið í gang og opið rými sem má nýta sem sjónvarps- og vinnurými, eða skipta upp í tvö svefnherbergi.
Baðherbergi: Skápur við enda gangs, sem sem gengið er í annað af tveimur rúmgóðum baðherbergjum. Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir.
Eldhús: Gangur opnast til rúmgóðs og barts stofu/alrýmis þar sem er glæsileg eldhúsinnrétting á vegg og eldunareyja með helluborði, innfelldri viftu og innbyggðum vínkæli. Öll tæki fylgja eldhúsinu, þar með talið ísskápur og uppþvottavél.
Stofa: Úr stofu er gengið út á suður svalir með glerhandriði og tréklæðningu á gólfi.
Til vinstri úr stofu er stuttur gangur þar sem gengið er í rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Glæsilegt baðherbergi er innaf svefnherbergi.
Á gólfum íbúðarinnar er dökkleitt „rustik“ parket. Allt efnisval og frágangur er sérlega vandað.Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir.
Rekstraraðilar sjá um rekstur og viðhald bílakjallarans, þar sem hægt er að fá leigt stæði, Margvíslegar útfærslur eru á leigusamningum sem ætti að koma til móts við þarfir hvers og eins.
Myndir hér sem eru með auglýsingu eru úr sýningaríbúð.
Vel staðsett, einstaklega glæsileg eign þar sem vandað hefur verið til verka.