Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Austurhöfn íbúð 508, glæsileg endaibúð með gluggum á 3 vegu. Byggingin er með metnaðarfullri hönnun og stendur á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni. Íbúðinni fylgja 2 stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu. íbúðum við Austurhöfn hafa ný viðmið verið sett í gæðum.
Bókið skoðun hjá Þórunnu Páls lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Íbúð 508 er á 5. hæð. Lyfta opnast beint inn í íbúðina, sem tryggir næði og þægilega aðkomu.Henni fylgja þrennar svalir. 5,6 fm yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofu, 5,6 fm suður svalir frá herbergi og loks og litlar svalir til austurs inn í garð úr hjónaherbergi. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Gott svefnherbergi með með baðherbergi inn af og rúmgott svefnherbergi með útgengi á suður svalir. Eldhúsið er vel búið með tveimur ofnum, vínkæli og stórum ísskáp. Íbúðin er skráð 163,6 fm og því til viðbótar er 13,6 fm geymsla. Rúmgóð forstofa tengist gestasnyrtingu og þvottahúsi. Glæsileg stofa með gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á 5,6 fm suður svalir þar sem horft er yfir miðborgina. Íbúðinni fylgja stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.
Á vefsvæði Austurhafnar http://austurhofn.is er að finna upplýsingar um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Athugið að myndir eru úr ýmsum íbúðum v. Austurhöfn og endurspegla ekki endilega þá íbúð sem hér er kynnt heldur frekar sýndar til að gefa betri mynd af innréttingum og ásýnd íbúða. Pantið einkaskoðun á íbúð hjá Þórunni Páls lgf. í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
Óskar R. Harðarson hdl og lögg. fasteignasali í síma 661-2100 eða oskar@miklaborg.is
Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is