Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Nýtt í einkasölu - Elliðabraut 4-10.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögmanni og löggiltum fasteignasala í síma 691-1931 eða ohb@miklaborg.is
Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu). Vestur svalir . Rúmgott alrými, mögulegt að bæta við 2. svefnherbergi. Bílskúr og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgja eigninni.
Nánari lýsing :
Anddyri með góðum fataskáp.
Rúmgott opið stofu og eldhúsrými. Eldhús er með L-laga innréttingu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn.
Úr alrými er útgengt á 5,3 fm vestur svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðinni fylgir bílskúr í bílakjallara (merktur 01 0123, stærð 24,6 fm) ásamt sérmerkt stæði í lokaðir bílageymslu merkt B044 auk 4,7 fm geymslu í kjallara.
Ath. myndir eru úr íbúð 324 og sýna frágang og skil inréttinga.
Eignin skilast fullbúin án gólfefna.
Elliðabraut 4-10
Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í lokaðri bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið
Norðlingaholt er staðsett í nágreni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Ómar Hvanndal lögmaður, s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Jason Kr. Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 - jko@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson, aðst.m. fasteigansala s: 691-2312 - osa@miklaborg.is