Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Elliðabraut 8-10. Bókið skoðun hjá Ómari Hvanndal lögmanni og aðstm. fasteignasala í síma 832-3200 eða omar@miklaborg.is og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jko@miklaborg.is - Glæsileg 2ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á efstu hæð. 46 fm þakverönd. 25,1 fm bílskúr og sérmerkt stæði í bílageymslu fylgja eigninni.
Nánari lýsing : Anddyri með góðum fataskáp. Opið stofu og eldhúsrými. Í Eldhúsi er eyja með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Frá eldhúsi er útgengt út á 46 fm þaksvalir. Rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi og 5,8 fm svölum. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Gluggi er á baðherberginu. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. á Baðherbergi er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðinni fylgir 25,1 fm bílskúr, stæði í lokaðir bílageymslu auk 4,9 fm geymslu í kjallara. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða 2,9 metrar. Eignin skilast fullbúin án gólfefna.
Elliðabraut 4-10 Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í lokaðri bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið Norðlingaholt er staðsett í nágreni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Ómar Hvanndal lögmaður s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Jason Kr. Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 - jko@miklaborg.is
Árni Davíð Bergs, sími 625 2500 - arni@miklaborg.is