Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Nýtt í sölu - Elliðabraut 8-10. - 106,8 fm íbúð á þriðju hæð.
Bókið einkaskoðun hjá Jasoni Kr. Ólafssyni, löggiltum fasteignasala í síma 775 1515 og jko@miklaborg.is eða Íris síma 7-700-500 - iris@miklaborg.is eða Árni Davíð Bergs, sími 625 2500 - arni@miklaborg.is
Eignin skilast fullbúin án gólfefna.Myndir úr myndashowi eru úr annari íbúð með eins innréttingum.
Nánari lýsing : Anddyri með fataskáp. Tvö svefnherbergi með skákum. Svalir úr öðru herberginu sem snúa til suðurs. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Þvottaaðstaða inná baðherbergi.
Opið stofu- og eldhúsrými. Í Eldhúsi innrétting með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Svalir til vesturs. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðir bílageymslu . Eignin skilast fullbúin án gólfefna.
Elliðabraut 4-10 - Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í lokaðri bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið - Norðlingaholt er staðsett í nágreni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Jason Kr. Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 - jko@miklaborg.is
Ómar Hvanndal lögmaður. og aðstm. fasteignasala s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir í síma 7-700-500 - iris@miklaborg.is - sýnum daglega
Árni Davíð Bergs, sími 625-2500 - arni@miklaborg.is aðstoðarmaður fasteignasala.