Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Elliðabraut 4-10 íbúð 320.
Bókið einkaskoðun hjá Jasoni Kr. Ólafssyni, löggiltum fasteignasala í síma 775 1515
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með aukinni lofthæð. Sérmerkt stæði í opinni bílageymslu fylgir eigninni.
Nánari lýsing : Anddyri með fataskáp. Tvö svefnherbergi með skápum. Svalir úr stærra herberginu sem snúa til austurs. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Þvottaaðstaða inná baðherbergi.
Opið stofu- og eldhúsrými. Í Eldhúsi innrétting með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Svalir til vesturs. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í opinni bílageymslu. Eignin skilast fullbúin án gólfefna.
Elliðabraut 4-10 - Glæsilegt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Norðlingaholti. Húsið skiptist í fjóra stigaganga sem hver er byggður í kringum inngarð. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Innandyra eru innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og sérmertk stæði í opinni bílageymslu. Sumum íbúðum fylgir einnig bílskúr.
Hverfið - Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur ss. Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
ATH. Myndir geta verið úr öðrum íbúðum í sama húsi en sýna þó innréttingar og frágang íbúðar.
Nánari lýsingu um verkefnið má finna á www.ellidabraut.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Jason Kr. Ólafsson, löggiltum fasteignasala í síma 775 1515
Ómar Hvanndal lögmaður. og aðstm. fasteignasala s. 832-3200 - omar@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - ohb@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson, löggildingarnemi í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is