Lágmúla 4 – 108 Reykjavíkkiktu við í heimsókn
569 7000hafðu samband
Miklaborg kynnir: Austurhöfn íbúð 504, er glæsileg 177,3 fm íbúð ásamt tveimur sérmerktum stæðum í bilageymslu.Tilkomumikið útsýni til sjávar yfir höfnina. Beint aðgengi úr lyftu. Fjölbreytt þjónusta í boði frá fimm stjörnu hótelinu Reykjavík Edition við hliðina. Hjónasvíta með fataherbergi og annað svefnherbergi með sér baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús, stórar stofur og sjónvarpshorn. Stórglæsilegt opið eldhús. Skjólgóður lokaður garður . Bókið skoðun hjá Þórunni Pálsd. lgf.s.773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um allt er við kemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Íbúð 504 er á 5. hæð. Frá íbúðinni er heillandi útsýni yfir gömlu höfnina. Tvennar svalir. glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og annað svefnherbergi með baðherbergi inn af. Lyfta opnast beint inn í íbúðina, sem tryggir næði og þægilega aðkomu. Eldhúsið er vel búið með tveimur ofnum, vínkæli og stórum ísskáp. Íbúðin er skráð 165,4 fm og því til viðbótar er 11,9 fm geymsla. Rúmgóð forstofa með gestasnyrtingu og fatahengisherbergi og þvottahúsi inn af því. Glæsileg stofa með gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á 11,2 fm svalir þar sem horft er yfir höfnina og með útsýni til vesturs. Íbúðinni fylgja tvö stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.
Athugið að myndir eru úr ýmsum íbúðum v. Austurhöfn og endurspegla ekki endilega þá íbúð sem hér er kynnt heldur frekar sýndar til að gefa betri mynd af innréttingum og ásýnd íbúða. Pantið skoðun á íbúð hjá Þórunni Páls lgf. í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
Óskar R. Harðarson hdl og lögg. fasteignasali í síma 661-2100 eða oskar@miklaborg.is
Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is