Opið hús: 27.05.2026, 17:15 - 27.05.2026, 18:00

Ásbúð 89 210

Garðabær

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulagt 276,9 fermetra parhús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföldum bílskúr á eftirsóttum stað að Ásbúð 89, 210 Garðabæ (tvö fastanúmer). Eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð. Húsið stendur á fallegri og rúmgóðri lóð, að framan er steypt plan og innkeyrsla með hitalögnum undir og á baklóð er stór viðarverönd og gróðursæll garður í suður. Góð staðsetning þar sem stutt er í Hofstaðaskóla, Fjölbrautarskóla Garðabæjar, leikskóla, verslun og þjónustu.

Fasteignamat eignarinnar er kr. 188.000.000.

Skráning eignarinnar skv. Fasteignaskrá er eftirfarandi:

Aðal íbúðarrými er skráð samtals 204,4 fm. þar af er innbyggður, tvöfaldur 36,8 fm. bílskúr, aukaíbúð er skráð 72,5 fm. Samtals stærð 276,9 fm. Í dag er húsið notað sem ein heild þar sem aukaíbúðin hefur verið opnuð að aðal íbúðarrými. Auðvelt er að færa aukaíbúð aftur í fyrra skipulag.


***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***

Nánari lýsing - Neðri hæð

Gengið er inn um sérinngang inn í flísalagða forstofu. Gestasnyrting er inn af forstofu. Rými sem áður var lokað af sem aukaíbúð með sérinngangi hefur verið opnað og tekið snyrtilega inní aðalíbúðarými og skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, alrými, eldhús, baðherbergi og tvær geymslur. Eldhúsinnrétting er bæði með eldavél og ísskáp. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtu, salerni og handlaug með skúffum þar undir. Auðvelt er loka af aukaíbúð og færa neðri hæð aftur í fyrra skipulag.

Nánari lýsing - Efri hæð

Gengið er upp steyptan og flísalagðan stiga upp á efri hæð og er þakgluggi yfir stiga sem gefur góða birtu inn. Komið er upp í rúmgott og bjart alrými með flísum á gólfi, eldhúsi og borðstofu. Hátt er til lofts og innfelld lýsing í lofti. Eldhúsinnrétting er sérsmíði frá Brúnás með góðu skápa- og vinnuplássi. Frá borðstofu er gengið inn í samliggjandi stofur. Stofurnar tvær eru bjartar og rúmgóðar, parketlagðar með útgengi út í nýlegan sólskála sem er með flísum á gólfi. Rennihurð er frá sólskóla út á viðarverönd og þaðan út á lóð. Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, tvö rúmgóð barnaherbergi og hjónaherbergi með útgengi á út á svalir. Baðherbergi er með flísar á gólfi, veggjum og inn í sturtu. Upphengt salerni og handlaug. Hvít baðinnrétting með graníti á borðum, gott skúffupláss og sér skápar, þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílskúr, er tvöfaldur og með tveimur innkeyrsluhurðum. Gluggar, niðurföll í gólfi og rennandi heitt og kalt vatn. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla á vegg fyrir framan bílskúr. Útigeymsla/köld geymsla er undir stiga frá svölum niður á lóð.
Viðhald að utan

Þakjárn og þakpappi voru endurnýjuð árið 2010. Eignin var múrviðgerð og máluð að utan árið 2022.

Nánari upplýsingar veitir

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Fasteignin Ásbúð 89

276.9 7 Herbergi 2 Stofur 5 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1976
Fermetraverð : 685.807 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 188.000.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

stefan
Stefán Jóhann Stefánsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.A. stjórnmálafræði

Stefán Jóhann hóf störf hjá okkur haustið 2023. Hann er í löggildingarnámi sem hann lýkur vorið 2024. Stefán æfði knattspyrnu með Þrótti upp í meistaraflokk og heldur með Liverpool í ensku. Hann er að auki mikill áhugamaður um stangveiði og hefur sinnt veiðileiðsögn á sumrin.

189.900.000 Kr.
Hafðu samband