Úthlíð 6 221

Hafnarfjörður

Lýsing

***ATH - EIGNIN ER SELD OG OPIÐ HÚS FELLUR NIÐUR ***

Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt steinsteypt einbýli, á tveimur hæðum, við Úthlíð 6 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 187,7 m2 skv. fasteignaskrá en við neðri hæð bætast rúmlega 48 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, tvö baðherbergi, 4-5 svefnherbergi, sjónvarpshol, stofu, þvottahús og bílskúr. Á palli, sem vísar í suður, er heitur og kaldur pottur.

Nánari lýsing eignar.

Komið er inn í húsið á efri hæð þar sem er forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. Stofa og eldhús í rúmgóðu, opnu og björtu rými með mikilli lofthæð og útgengt út á góðan pall. Eldhús með fallegri hvítri og dökkri innréttingu með ljósum steini (calacatta) á borðum, 80 cm span helluborði, bakaraofni í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni/bakaraofni, pláss er fyrir vínkæli og tvöfaldan ísskáp. Hjónaherbergi með fataskáp. Sjónvarpshol sem áður var svefnherbergi. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, upphengdu salerni og borði með vask. Gólfefni efri hæðar er parket nema á baði og forstofu þar sem eru flísar. Gólfhiti er í forstofu og á baðherbergi.

Stigi milli hæða er steyptur með filt teppi og glerhandriði. Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum. Þvottahús með útgengi út í bakgarð. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hornbaðkari, upphengdu salerni og hvítri innréttingu með vask og stórum spegli. Sjónvarpshol er einnig á neðri hæð. Stærsta svefnherbergið er í dag nýtt sem rækrar- og fataherbergi. Gólfefni á neðri hæð eru flísar. Gólfhiti er á neðri hæð nema í tveimur svefnherbergjum þar eru ofnar.

Bílskúr er með rafmagni, heitu og köldu vatni, eldhúskrók og baðherbergi. Búið var að útbúa íbúð í skúrnum sem var nýtt um tíma.

Sólpallur er út frá stofu til suðurs með köldum og heitum potti, garður er bakvið hús þar sem börnin á heimilinu eru með fótboltavöll, körfuboltavöll og trampolin.

Bílastæði er fyrir allt að þrjá bíla fyrir framan bílsskúr, gönguleið frá götu og milli húss og bílskúrs er með snjóbræðslu.

Vel staðsett og fallegt fjölskylduhús í grónu og barnvænu Setbergshverfi í Hafnarfirði. Húsið er staðsett í rólegum botnlanga og leikskóli er neðst í götunni.

Allar nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Úthlíð 6

235.7 6 Herbergi 1 Stofur 5 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1993
Fermetraverð : 659,149 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 117.300.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Óskar Sæmann
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
154.900.000 Kr.
Hafðu samband